Fotbolti.net
13.05.23 - 19:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rúnar Kristins: Við þurfum að tala hreinskilnislega um hlutina

Auglýsing
Á hliðarlínunni í dag.

Á hliðarlínunni í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður illa, alltaf leiðinlegt að tapa fótboltaleikjum. Þetta var mikil stöðubarátta, völlurinn eins og hann er og veðrið eins og það var. Ég held að það hafi eitt skot farið á rammann í leiknum og það fór í netið. Því miður voru það Blikar sem skoruðu það," sagði svekktur Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir tap gegn Breiðabliki í Bestu deildinni í dag.
KR tapaði 5-0 gegn Val í síðustu umferð og þjálfarinn sá framfarir á sínu liði. „Algjörlega. Mér fannst allir vera leggja sig fram, hlupu eins og brjálæðingar allan leikinn og liðið var að reyna. Það vantar sjálfstraust í að taka boltann einstaka sinnum niður eins og Blikarnir gerðu örlítið betur en við. En við vildum heldur ekki, og lögðum það ekki upp, að vera að spila alltof mikið því aðstæður buðu ekki upp á það. Okkar leikplan gekk ágætlega upp en auðvitað hefði ég viljað skapa eitthvað meira."

Þetta er aukaverkunin og hún er því miður sár
Besta færi KR fékk Jóhannes Kristinn Bjarnason í upphafi seinni hálfleiks. Nú er KR búið að spila fimm leiki þar sem liðið hefur ekki skorað.

„Auðvitað (leggst það á sálina). Ástæða þess að við tökum ekki boltann, þó að það hafi ekki verið nema 3-4 sinnum niður og spilum honum, er auðvitað sjálfstraust líka. Þegar við komumst loksins í færi þá hafa menn kannski ekki alveg trú á því. Þegar illa gengur er þetta aukaverkunin og hún því miður er sár."

Munu vinna fótboltaleiki með svona framlagi
Fimmta tapið í röð staðreynd. Hvað er hægt að segja?

„Voða lítið, við erum búnir að vinna alla vikuna markvisst að því að styrkja hausinn á strákunum og okkur öllum og reyna fá það sem við sáum í dag. Ég sagði við strákana eftir leik að ef við leggjum svona mikið á okkur í öllum leikjum þá munum við vinna fótboltaleiki. Aðstæðurnar munu batna og við munum geta spilað meiri fótbolta. En númer 1,2 og 3 er að menn leggi sig svona fram og sýni að menn virkilega vilji leggja sig fram fyrir sitt félag. Við gerðum það í dag en við fengum ekkert fyrir það."

„Algjörlega skref í rétt í átt en við þurfum ennþá að laga ýmislegt. Fyrst og fremst að nýta færin okkar betur."


Gekk fullvel á undirbúningstímabilinu
KR vill vera í baráttunni um titilinn en nú þegar eru fjórtán stig í toppsætið og Víkingur á ofan á það leik til góða.

„Við erum alls ekki að hugsa um titilinn. Við erum búnir að spila á ungu liði, erum búnir að vera með breytingar á leikmannahóp. Það hefur verið kallað eftir því undanfarin ár. Við erum með Jóhannes, Jakob og Benoný og leikmenn sem hafa aldrei spilað á Íslandi áður - norsku leikmennina. Við erum með dálítið marga nýja leikmenn. Þetta þarf aðeins að slípast."

„Okkur gekk kannski fullvel á undirbúningstímabilinu og í fyrstu leikjunum í deildinni. En akkúrat núna erum við búnir að fá mikið bakslag í síðustu leikjum, það er alls ekki gott og við þurfum að gera okkur betur grein fyrir stöðunni; hvaða lið erum við, hvar getum við verið og við hverja getum við mælt okkur. Við þurfum að leggja á okkur vinnu og reyna bæta okkar leik."


Spilaborgin fljót að falla
Finnst Rúnar einhverjir reynslumiklir leikmenn hafa svikið sig með lélegri frammistöðu?

„Nei, ég vil ekki segja það. Þú horfir oftast í tapleikina og við hefðum viljað sjá meira frá mörgum leikmönnum. En það er bara þannig að þegar einn eða tveir eiga ekki sinn besta dag þá er spilaborgin fljót að falla. Við þurfum að fá alla til að leggja sig fram eins og í dag og það þurfa allir að eiga góða leiki þegar þeir spila. Ef við fáum sömu ákefð og vinnusemi og í dag þá kemur hitt."

Tala hreinskilnislega um hlutina
Hvernig var vikan eftir tapið slæma gegn Val?

„Ekkert margir fundir, en við auðvitað settumst niður með okkar lykilleikmönnum, settumst niður með öllu liðinu, tókum einstaklinga örlítið til hliðar og spjölluðum saman. Við þurfum að tala hreinskilnislega um hlutina og reyna rétta úr kútnum á einhvern hátt, fá menn með okkur í lið. Við sjáum það á þessum leik að menn eru að leggja sig fram, menn vilja. Við þurfum að gera okkur grein fyrir stöðunni sem við erum í og reyna vinna okkur út úr henni."

Hefur trú á sjálfum sér og sleppir því að lesa fréttir um sig
Rúnar var spurður út í umræðuna um sig og sína framtíð sem þjálfari KR.

„Ég hef ekki opnað blöð í viku og ætla ekki að gera það. Ég hef enga þörf að lesa hvað aðrir eru að segja úti í bæ. Ég þarf að hugsa um sjálfan mig og þarf að fylgja mínum sjónarmiðum og markmiðum. Ég þarf að hafa trú á sjálfum mér. Ég þarf ekki að hlusta á einhverja aðra segja mér hvernig menn hefðu gert hlutina eða hvort ég sé réttur eða rangur maður. Ég sleppi því að opna blöðin og veit ekki hvað er búið að tala um alla vikuna."

„Ég geri það alltaf, hef fulla trú á sjálfum mér og fulla trú á mínum aðstoðarmönnum og mínu liði. Ég held að leikurinn í dag sýni að strákarnir hafa trú á mér og okkar þjálfarateymi. Svo er annarra að dæma um það hvort það þurfi breytingar eða eitthvað annað. Ég er ekkert að spá í því, ég er reynslunni ríkari en það að þurfa að vera lesa eitthvað um mig eða hlusta á einhverja spekinga úti í bæ hvort ég sé góður eða lélegur þjálfari. Maður verður ekkert lélegur þjálfari á einum degi og leikmennirnir mínir verða ekki lélegir á einum degi."

„Einhvern tímann er þörf á breytingum, einhvern tímann þarf að gera eitthvað. En það er stjórnarinnar að sjá til þess að velja rétt í þeim efnum. Á meðan ég er hér þá legg ég mig 100% fram eins og ég hef gert alla tíð,"
sagði Rúnar að lokum.
Ég held að leikurinn í dag sýni að strákarnir hafa trú á mér og okkar þjálfarateymi

Ég held að leikurinn í dag sýni að strákarnir hafa trú á mér og okkar þjálfarateymi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við auðvitað settumst niður með okkar lykilleikmönnum, settumst niður með öllu liðinu, tókum einstaklinga örlítið til hliðar og spjölluðum saman.

Við auðvitað settumst niður með okkar lykilleikmönnum, settumst niður með öllu liðinu, tókum einstaklinga örlítið til hliðar og spjölluðum saman.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Leikmenn sem hafa aldrei spilað á Íslandi áður'

'Leikmenn sem hafa aldrei spilað á Íslandi áður'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.