Sonný Lára: Við erum góðar undir pressu
Auglýsing

Sonný Lára Þráinsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sonný Lára Þráinsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sonný Lára Þráinsdóttir, markvörður og fyrirliði Breiðabliks, er spennt fyrir tímabilinu sem hefst um helgina.
„Mér líst mjög vel á þetta, við erum ótrúlega spenntar og tilhlökkunin er mjög mikil," sagði Sonný í samtali við Fótbolta.net á kynningarfundi Pepsi Max-deildana.
„Undirbúningstímabilið hefur gengið ágætlega, það hefur verið öðruvísi út af ástandinu, en annar bara gengið vel. Það var mjög skrítið að æfa eins og ég vona að þetta gerist aldrei aftur," sagði hún og hló.
Breiðablik endaði í öðru sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu þrátt fyrir að hafa farið taplausar í gegnum tímabilið. Fyrir þetta tímabil eru Blikar í efsta sæti í flestum spám og markmiðið í Kópavognum er að endurheimta titilinn.
„Það er ekki spurning (að Breiðablik ætlar að vinna titilinn). Við erum klárar í þetta, það er pressa á okkur en við erum góðar undir pressu."
1. umferð Pepsi Max-kvenna
föstudagur 12. júní
19:15 Valur-KR (Origo völlurinn)
laugardagur 13. júní
13:00 Breiðablik-FH (Kópavogsvöllur)
15:00 Þór/KA-Stjarnan (Þórsvöllur)
17:00 Fylkir-Selfoss (Würth völlurinn)
sunnudagur 14. júní
16:00 ÍBV-Þróttur R. (Hásteinsvöllur)
Sjá einnig:
Ný herferð fyrir Pepsi Max-kvenna: Mjög jákvætt