Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 13. júní 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Robertson: Rétt hjá stuðningsfólkinu að baula á okkur
Andy Robertson.
Andy Robertson.
Mynd: EPA
Stuðningsfólk skoska landsliðsins baulaði á leikmenn liðsins eftir slæmt tap um liðna helgi.

Skotar töpuðu 3-0 gegn nágrönnum sínum frá Írlandi í Þjóðadeildinni. Þeir Skotar sem ferðuðust til að styðja liðið, þau enduðu á því að baula á það að leik loknum.

„Stuðningsfólkið sem baulaði á okkur, það var rétt hjá þeim að gera það," sagði Andy Robertson, bakvörður Skotlands, eftir leikinn.

„Við vitum að þau ferðuðust hingað og borguðu mikinn pening til að sjá leikinn. Þetta var alls ekki nægilega gott hjá okkur," sagði Robertson jafnframt.

Þetta ár hefur ekki verið gott fyrir skoska landsliðið en á dögunum tapaði liðið í umspilinu fyrir HM og verður því ekki með í Katar næsta vetur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner