fös 13. júní 2025 14:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðjón Pétur spáir í 8. umferð Lengjudeildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Ágúst Gylfason, þjálfari Leiknis.
Ágúst Gylfason, þjálfari Leiknis.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Öflugur á counternum.
Öflugur á counternum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verða þrír leikir í Lengjudeildinni í kvöld og þrír leikir á morgun. Flest augu verða líklega á Breiðholtinu þar sem ÍR og Leiknir eigast við í mjög svo áhugaverðum leik.

Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður Hauka, spáir í leikina sem eru framundan í áttundu umferð deildarinnar.

HK 1 - 2 Fjölnir (19:15 í kvöld)
Fjölnir hafa hikstað í byrjun móts og þó að ég sé á því að HK sé best mannaða lið deildarinnar með mikla reynslu og gæði í lykilmönnum, þá er þetta leikurinn sem Fjölnir bíta frá sér. Annars fer að hitna vel undir þjálfarateyminu. Fjölnir styrkti liðið sitt ekki nóg eftir að hafa misst lykilmenn í önnur lið og aðrir lykilmenn hættu. Bjarni Þór þarf að stíga upp og hann Daníel Ingvar leiða þennan óvænta sigur.

ÍR 2 - 2 Leiknir (19:15 í kvöld)
Leikurinn um Breiðholtið verður ein stór veisla og eftir að galdramaðurinn Gústi Gylfa tók við Leikni þá geta þeir ekki hætt að vinna. En núna mætir Jói með sitt feykisterka lið og leikurinn verður opinn og skemmtilegur en þetta verður heiðursmannajafntefli.

Fylkir 2 - 1 Grindavík (19:15 í kvöld)
Fylkismenn vinna þennan leik með naumindum. Ungu strákarnir í Grindavík hafa staðið sig með prýði í sumar en Fylkir sýnir klærnar eftir að Árni hefur grillað liðið vel alla vikuna. Emil Ásmunds skorar með hjólhestaspyrnu og Orri skorar með skalla. Eftir meiðsli hjá Christian Bjarma þá stígur Eysteinn inn í vinstri bak og skorar óvænt með neglu fyrir utan teig en það verður ekki nóg.

Selfoss 3 - 4 Þróttur R. (14:00 á morgun)
Þróttarar sigra þetta í opnum leik. Þó ég að ég elski Selfoss og alla í kringum félagið þá hafa Þróttarar verið sterkir og eru með einn efnilegasta miðjumann deildarinnar og Eika Blö, frænda Audda Blö, í bakverðinum eins og rennilás upp og niður völlinn. Svo er Liam Jeffs að klára sóknirnar. Þetta verður þetta erfitt fyrir Selfoss þó að Frosti Brynjólfs skori 3 á counternum.

Völsungur 2 - 1 Keflavík (14:00 á morgun)
Völsungur vinnur þennan leik á heimavelli eftir mikinn baráttuleik. Elfar Árni potar inn einu og hinn síungi Steinþór Freyr skorar hitt. Sindri Snær einn besti leikmaður deildarinnar mun reyna að lemja sína menn áfram en það er ekki nóg þennan daginn. Gunnlaugur Fannar minn maður mun skora með skalla eftir horn en því miður er einn sem gleymdi að vera heiðarlegur og ákvað að svíkja liðsfélagana og dekkar ekki manninn sinn og það kostar Keflavík.

Njarðvík 2 - 3 Þór (16:00 á morgun)
Þórsarar hafa komið mörgum á óvart en ekki mér eins og sást í spá minni fyrir mót. Þeir sigla erfiðum sigri heim norður. Þrátt fyrir að Gunnar sé að elda þarna í Njarðvíkinni nær hann ekki að kúkka nógu góðan mat þetta kvöldið.

Fyrri spámenn:
Ásgeir Marteins (2 réttir)
Sævar Atli (2 réttir)
Hrafnkell Freyr (4 réttir)
Júlíus Mar (4 réttir)
Bjarki Björn (3 réttir)
Oliver Heiðars (1 réttur)
Elmar Kári (1 réttur)
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 8 5 3 0 12 - 4 +8 18
2.    HK 8 4 2 2 15 - 8 +7 14
3.    Njarðvík 7 3 4 0 17 - 7 +10 13
4.    Grindavík 7 3 2 2 20 - 15 +5 11
5.    Þór 7 3 2 2 17 - 14 +3 11
6.    Þróttur R. 7 3 2 2 13 - 11 +2 11
7.    Keflavík 6 3 1 2 14 - 8 +6 10
8.    Völsungur 7 3 0 4 10 - 16 -6 9
9.    Fylkir 8 1 4 3 9 - 12 -3 7
10.    Leiknir R. 8 2 1 5 9 - 21 -12 7
11.    Selfoss 7 2 0 5 6 - 15 -9 6
12.    Fjölnir 8 0 3 5 7 - 18 -11 3
Athugasemdir
banner