Manchester United og Southampton skildu jöfn þegar liðin áttust við í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Southampton komst í 1-0, United svaraði því með tveimur mörkum og jöfnuðu gestirnir svo seint í uppbótartímanum. Varamaðurinn Michael Obafemi gerði markið.
Mörkin úr leiknum hafa verið birt á vefsíðu Morgunblaðsins.
Þau má sjá hér að neðan.
Manchester Utd 2 - 2 Southampton
0-1 Stuart Armstrong ('12 )
1-1 Marcus Rashford ('20 )
2-1 Anthony Martial ('23 )
2-2 Michael Obafemi ('90 )
Athugasemdir