Zlatan Ibrahimovic segist ekki vita hvort hann verði áfram hjá AC Milan á næsta tímabili. Hinn 38 ára gamli Zlatan kom til AC Milan frá LA Galaxy í janúar síðastliðnum og samdi út tímabilið.
Engar viðræður hafa átt sér stað um framlengingu á samningi en Zlatan hefur verið orðaður við sænska félagið Hammarby.
Zlatan keypti hlut í Hammarby fyrr á árinu en hann segir framtíðina í óvissu.
Engar viðræður hafa átt sér stað um framlengingu á samningi en Zlatan hefur verið orðaður við sænska félagið Hammarby.
Zlatan keypti hlut í Hammarby fyrr á árinu en hann segir framtíðina í óvissu.
„Ég held áfram að spila ef ég get staðið mig vel. Ég er ekki lukkudýr," sagði Zlatan.
„Næsta ár? Sjáum til. Ég á ennþá þrjár vikur eftir af samningi. Enginn hefur byrjað að tala um framtíðina, hvorki af minni hálfu né Milan. Það veit enginn neitt um framtíð mína núna. Spilum og endum tímabilið eins vel og við getum. Síðan sjáum við til."
Athugasemdir