Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 13. júlí 2021 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sturridge æfir með Mallorca
Mynd: Getty Images
Daniel Sturridge, fyrrum framherji Liverpool, mun frá og með morgundeginum æfa með RCD Mallorca á Spáni.

Sturridge hefur verið án félags eftir að hafa yfirgefið Trabzonspor á þarsíðustu leiktíð.

Sturridge er 31 árs og skoraði 67 mörk í 160 leikjum á sínum ferli með Liverpool.

Samningi hans við Trabzonspor var rift í mars fyrir rúmu ári síðan þegar hann var dæmdur í fjögurra mánaða bann vegna þess að hann braut veðmálareglur.

Mallorca mun spila í La Liga á komandi tímabili eftir að hafa komist upp úr B-deildinni í vor.


Athugasemdir
banner
banner