13.07.22 - 14:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Özil til Istanbul Basaksehir (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýski leikmaðurinn Mesut Özil hefur fengið samningi sínum við tyrkneska félagið Fenerbahce rift. Hann var ekki lengi að finna sér nýtt félag því hann er búinn að semja við Istanbul Basaksehir.
Özil er 33 ára gamall og verður Basaksehir sjötta liðið sem hann spilar með á sínum meistaraflokksferli. Áður hefur hann leikið með Schalke, Werder Bremen, Real Madrid, Arsenal og svo Fenerbahce.
Özil er 33 ára gamall og verður Basaksehir sjötta liðið sem hann spilar með á sínum meistaraflokksferli. Áður hefur hann leikið með Schalke, Werder Bremen, Real Madrid, Arsenal og svo Fenerbahce.
Özil hafði ekki spilað fyrir tyrkneska liðið síðan 20. mars eftir að hann var tekinn úr hóp þar sem óánægja var með líkamlegt ástand hans. Hann lenti í rifrildi við Ismail Kartal, bráðabirgðastjóra liðsins, og kom sér ekki inn í myndina eftir að Jorge Jesus tók við liðinu.
Özil lék 36 leiki fyrir Fenerbahce, skoraði níu mörk og átti þrjár stoðsendingar. Félagaskipti hans báru ekki þann ávöxt sem vonast var eftir en hann kom frá Arsenal í janúar 2021.
Fenerbahce endaði í 2. sæti tyrknesku deildarinnar í vor og Basaksehir endaði í fjórða sæti.
Sjá einnig:
Özil íhugar að hætta í fótbolta og gerast atvinnumaður í Fortnite (18. júní)

🎶 #KırZincirlerini 🎶
— İstanbul Başakşehir (@ibfk2014) July 13, 2022
🟠🔵 @M10 pic.twitter.com/20XlJ6vfu8