Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   lau 13. júlí 2024 12:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Aston Villa í viðræðum við Everton
Mynd: EPA

Aston Villa er í viðræðum við Everton um kaup á belgíska miðjumanninum Amadou Onana.


Sky Sports greinir frá því að Aston Villa hafi boðið um 50 milljónir punda í hann.

Þessi 22 ára gamli belgíski landsliðsmaður gekk til liðs við Everton árið 2022 frá Lille og skrifaði þá undir fimm ára samning. Hann hefur leikið 72 leiki fyrir enska félagið og skorað 4 mörk.

Hann var í belgíska landsliðshópnum á EM í Þýskalandi en hann hefur leikið 17 landsleiki fyrir þjóð sína.


Athugasemdir
banner
banner
banner