Fotbolti.net
13.08.16 - 18:45
Jóhann Ingi Hafþórsson
Skrifar frá: Laugardalsvelli

Kristinn Ingi: Skemmtilegasta sem maður gerir

Auglýsing
Kristinn Ingi rífur upp bikarinn í leikslok.

Kristinn Ingi rífur upp bikarinn í leikslok.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borgun
<i>„Hún er geðveik, þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir,\"</i> sagði Kristinn Ingi Halldórsson eftir 2-0 sigur á ÍBV í úrslitaleik Borgunarbikarsins í dag er hann var spurður hvernig tilfinningin væri.

Hann segir leikinn hafa veirð erfiðan en á sama tíma að tvö mörk, snemma leiks, hafi hjálpað liðinu virkilega mikið.
„Þetta var mjög erfitt, við þurftum að hafa helling fyrir þessu á móti sterku liði ÍBV en það var þægilegt að komast í 2-0, það hefði verið aðeins þægilegra að ná inn þriðja markinu.\"

Kristinn lagði upp annað mark leiksins með góðri sendingu inn í teiginn, þar sem Sigurður Egill Lárusson var mættur til að klára.

„Addi kom með frábæra sendingu inn fyrir, þá reyndi ég að koma honum út og vonaði að einhver myndi koma að negla honum inn,\" sagði Kristinn.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.