Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 13. ágúst 2019 12:45
Magnús Már Einarsson
Mangala frítt til Valencia (Staðfest)
Mangala í leik með Valencia árið 2017.
Mangala í leik með Valencia árið 2017.
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Valencia hefur fengið varnarmanninn Eliaquim Mangala frítt í sínar raðir frá Manchester City.

Mangala þekkir til hjá Valencia eftir að hafa áður verið á láni hjá liðinu.

Hinn 28 ára gamli Mangala kom til Manchester City frá Porto árið 2014 á 32 milljónir punda en hann lék einungis 57 leiki á fimm árum hjá ensku meisturunum.

Síðasti leikur Mangala með Manchester City var á Nýársdegi árið 2017 í markalausu jafntefli gegn Crystal Palace.

Í fyrra fór Mangala til Everton á láni en hnémeiðsli settu strik í reikninginn þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner