Fotbolti.net
13.08.22 - 22:49
Ívan Guðjón Baldursson

Dennis til Forest (Staðfest) - Freuler og Maupay á leiðinni

Dennis til Forest (Staðfest) - Freuler og Maupay á leiðinni
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest er að stækka leikmannahópinn sinn ört á fyrstu vikum úrvalsdeildartímabilsins og var félagið að staðfesta komu Emmanuel Dennis frá Watford á fjögurra ára samningi.

Forest borgar 20 milljónir punda fyrir Dennis sem var einn af bestu leikmönnum Watford er liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Hann byrjaði fyrstu tvo leiki liðsins í Championship deildinni en missti af leik liðsins í gær þar sem hann var á leið í læknisskoðun hjá Forest.

Núna hefur Forest tilkynnt félagsskiptin og mun Dennis berjast við Taiwo Awoniyi og Sam Surridge um byrjunarliðssæti. Neal Maupay virðist þá vera á leið til Forest frá Brighton og mun hann þá bætast við baráttuna í fremstu víglínu.

Remo Freuler er þá einnig á leiðinni frá Atalanta fyrir 9 milljónir evra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.