Átti Liverpool að fá víti? - „Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt“

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Umdeilt atvik átti sér stað í leik Chelsea og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á Stamford Bridge en gestirnir vildu fá vítaspyrnu snemma í síðari hálfleiknum.
Dominik Szoboszlai kom með góða hornspyrnu inn í teiginn og fór boltinn í hendina á Nicolas Jackson og rétt framhjá markinu.
Þegar atvikið er skoðað er erfitt að dæma um þetta. Jackson er með vinstri hendina við líkamann en hægri höndin er þó aðeins fyrir utan.
Hann var nálægt því að stýra boltanum í eigið net en Anthony Taylor, dómari leiksins, stoppaði leikinn í örskamma stund og fékk þær upplýsingar frá Darren England í VAR-herberginu að þetta væri ekkert víti og hélt leikurinn því áfram.
Lesendur geta dæmt þetta atvik fyrir sig en hægt er að sjá atvikið með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Sjáðu umdeilda atvikið hér
Staðan er áfram 1-1 þegar tuttugu mínútur eru eftir.

Hægt að verja bolta sem er á leið á markið með hendi og allt í góðu...maður er alltaf að læra eitthvað nýtt.
— Hrafn Kristjánsson ???????? (@ravenk72) August 13, 2023
Ha? Hvernig er þetta ekki hendi víti?
— Einar Matthías (@einarmatt) August 13, 2023