Fotbolti.net
13.08.26 - 16:21
Elvar Geir Magnússon

Leicester til sölu

Leicester til sölu
Canon

Mynd: EPA

Leicester City er til sölu og er verðmiðinn yfir 200 milljónum punda.

Félagið hefur verið í taílenskri eigu í sextán ár en eigendurnur hafa látið bandarískan fjárfestingarbanka um að auglýsa söluna.

Í pakkanum eru karla- og kvennalið féagsins, King Power leikvangurinn sem tekur 32 þúsund áhorfendur, æfingasvæði og belgíska systurfélagið OH Leuven.
Hápunkturinn í sögu Leicester kom 2016 þegar liðið kom öllum á óvart og varð Englandsmeistari. Fimm árum síðar varð Leicester bikarmeistari en síðustu tvö ár hefur liðið fallið og er nú í C-deildinni.

Khun Aiyawatt „Top“ Srivaddhanaprabha gegnir nú stöðu stjórnarformanns eftir að faðir hans, Khun Vichai, lést í þyrluslysi rétt fyrir utan leikvanginn árið 2019.

Söluferlið hefst aðeins átta mánuðum eftir að Khun Top lýsti því yfir að hann tæki á sig sökina á mikilli hnignun félagsins undanfarið.
Aiyawatt 'Top' Srivaddhanaprabha, eigandi og stjórnarformaður Leicester.

Aiyawatt 'Top' Srivaddhanaprabha, eigandi og stjórnarformaður Leicester.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.