13.08.26 - 18:21
Brynjar Ingi Erluson
PSG að kaupa Ferran fyrir 50 milljónir evra

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru að ganga frá kaupum á spænska sóknarmanninum Ferran Torres frá Barcelona fyrir 50 milljónir evra.
Ben Jacobs, Fabrizio Romano og fleiri blaðamenn greina frá því að PSG og Barcelona hafi náð munnlegu samkomulagi um Ferran.
Ferran fékk leyfi frá Barcelona til að sleppa æfingum og hefur nú fengið grænt ljós á að halda til Parísar og ganga frá félagaskiptunum.
Hinn 26 ára gamli Ferran er uppalinn hjá Valencia en fór ungur til Manchester City þar sem hann lék til ársins 2022.
Hann hefur verið hjá Barcelona undanfarin fjögur og hálft ár og skoraði 21 mark í öllum keppnum á síðustu leiktíð.
Ferran var hetja spænska landsliðsins á HM í sumar er hann gerði sigurmarkið í úrslitaleiknum gegn Argentínu.
Hann verður annar sóknarmaðurinn sem PSG fær í sumar á eftir Maghnes Akliouche. Belgíski kantmaðurinn Mika Godts færist einnig nær félaginu.

???????????? BREAKING: Ferran Torres to Paris Saint-Germain, HERE WE GO! ????
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 13, 2026
Deal confirmed for World Cup final hero as Barça receive a fee worth €50m from PSG.
Ferran only wanted Paris and the agreement has been sealed after being at final stages for several days. All done. pic.twitter.com/4siCHz3yIc