Fotbolti.net
13.08.26 - 16:01
Kári Snorrason

Þessir gætu leyst Rodri af hólmi hjá City

Rodri er nálægt því að ganga í raðir Barcelona.

Rodri er nálægt því að ganga í raðir Barcelona.

Canon

Mynd: EPA

Spænski miðjumaðurinn Rodri mun að öllum líkindum yfirgefa Man City fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni.

Barcelona er á höttunum á eftir þessum þrítuga miðjumanni. 55 milljón punda tilboði Börsunga var hafnað nýverið en City verðsetur Rodri á yfir 60 milljónir punda.

Samningur fyrrum gullboltahafans rennur út eftir eitt ár og hefur hann gert City ljóst að hann ætli ekki að framlengja við félagið.

BBC tók saman fjóra leikmenn sem félagið gæti horft til sem arftaka Rodri.
Hafna öðru tilboði Barcelona í Rodri
TENGT EFNI

Hafna öðru tilboði Barcelona í Rodri

Ayyoub Bouaddi, Lille
City hefur verið sterklega orðað við Bouaddi í allt sumar og er félagið sagt hafa rætt við leikmanninn. Hann er sagður falur fyrir um 85 milljónir punda.

Hann heillaði á HM í sumar með Marokkó og réði þar ríkjum á miðjunni þrátt fyrir að vera aðeins átján ára.

Enzo Fernandez, Chelsea
Enzo hefur verið orðaður við bæði City og Real Madrid í sumar. Chelsea er tilbúið að selja hann fyrir 120 milljónir punda.

Nafni hans, Enzo Maresca nýr stjóri City, þekkir hann vel og er Argentínumaðurinn í miklu uppáhaldi hjá Maresca.

Alex Scott, Bournemouth
City hefur skoðað möguleikann á að fá Scott í sumar. Þessi 22 ára Englendingur hefur hafnað nýjum samningi Bournemouth en hann er samningsbundinn félaginu til 2028.

Bournemouth hafnaði 64 milljóna punda tilboði Chelsea í leikmanninn í síðasta mánuði og sagði hann ekki fáanlegan.

Alexis Mac Allister, Liverpool
Óvæntasta nafn listans. City er sagt hafa spurst fyrir um Argentínumanninn sem á tvö ár eftir á samningi hjá Liverpool.

Hann býr yfir mikilli reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og væri kjörinn kostur ef hann er fáanlegur. Sem er ansi stórt ef.

City hefur áhuga á Ayyoub Bouaddi.

City hefur áhuga á Ayyoub Bouaddi.

Canon

Mynd: EPA

Enzo Fernandez er falur á 120 milljónir punda.

Enzo Fernandez er falur á 120 milljónir punda.

Canon

Mynd: EPA

Alex Scott er eftirsóttur.

Alex Scott er eftirsóttur.

Canon

Mynd: EPA

Á tvö ár eftir af samningi.

Á tvö ár eftir af samningi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.