Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 13. september 2020 10:18
Ívan Guðjón Baldursson
Greenwood biðst afsökunar fyrir að innbyrða hláturgas
Phil Foden fékk stærri skerf af gagnrýni heldur en Greenwood, enda er hann eldri og í sambandi, auk þess að eiga tveggja ára dóttur.
Phil Foden fékk stærri skerf af gagnrýni heldur en Greenwood, enda er hann eldri og í sambandi, auk þess að eiga tveggja ára dóttur.
Mynd: Getty Images
Mason Greenwood og Phil Foden voru sendir heim eftir sigur Englands á Íslandi í Þjóðadeildinni um síðustu helgi. Þeir gerðust sekir um að brjóta reglur um sóttkví og fengu mikla gagnrýni í heimalandinu þrátt fyrir að vera ungir.

Herferð ensku miðlanna gegn þeim er þó ekki lokið því The Sun birti 'sögulegar' myndir af Greenwood, sem er aðeins 18 ára, innbyrða hláturgas.

„Ég hvet fólk sterklega til þess að fylgja ekki þessu fordæmi mínu. Á þessum tíma áttaði ég mig ekki á því en núna þekki ég hætturnar sem fylgja hláturgasi og samþykki að það var skelfileg ákvörðun af minni hálfu að prófa þetta einu sinni, eins og sést á þessum sögulegu myndum," sagði Greenwood.

„Ég er bara 18 ára gamall og er sífellt að læra nýja hluti. Síðustu vikuna hef ég áttað mig á því að ég verð dæmdur eftir öðrum stöðlum en venjulegir táningar vegna þess að ég er atvinnumaður í knattspyrnu. Mér ber að virða það og er ég staðráðinn í því að endurlauna það traust sem stjórinn minn og aðrir þjálfarar hafa sýnt mér."

Greenwood hefur skorað 17 mörk í fyrstu 53 leikjum sínum fyrir Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner