Sveinn Margeir Hauksson, ungur miðjumaður KA, fékk að líta sitt annað gula spjald í leik gegn Fylki í kvöld fyrir meintan leikaraskap.
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, var ósáttur við seinna gula spjaldið. Hann birtir mynd af atvikinu á Twitter og skrifar við það: „Mér fannst augljós snerting er Sveinn Margeir fékk gult fyrir dýfu. Svo er ég sá þessa mynd sem tekin var af atvikinu er ég enn sannfærðari að seinna gula fyrir dýfu sé einfaldlega rangur dómur."
Sveinn var rekinn af velli á 55. mínútu en KA var þá 2-0 yfir. Tíu inn á vellinum tókst KA að landa góðum og mikilvægum sigri.
Með fréttinni fylgja myndir sem Egill Bjarni Friðjónsson tók af atvikinu.
Mér fannst augljós snerting er Sveinn Margeir fékk gult fyrir dýfu. Svo er ég sá þessa mynd sem tekin var af atvikinu er ég enn sannfærðari að gefa seinna gula fyrir dýfu sé einfaldlega rangur domur!! En 3 stig vá hvað þau voru góð. pic.twitter.com/rJsi204sDw
— saevar petursson (@saevarp) September 13, 2020
Athugasemdir