Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 13. september 2020 20:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Noregur: Viðar með þrennu á níu mínútum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Örn Kjartansson er mættur aftur í norsku úrvalsdeildina og hann stimplaði sig inn með hvelli í kvöld.

Hann samdi nýverið við Vålerenga í annað sinn á ferlinum. Hann spilaði síðast með Vålerenga 2014 og skoraði þá 31 mark í 33 leikjum. Hann hélt áfram þar sem frá var horfið þegar hann sneri aftur í búninginn hjá félaginu á þessu sunnudagskvöldi.

Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu á níu mínútna kafla í fyrri hálfleik í sigri á Brann. Fyrsta markið kom á 14. mínútu og það þriðja á 23. mínútu.

Staðan var 5-1 í hálfleik fyrir Vålerenga og þannig endaði leikurinn. Viðar spilaði 64 mínútur en hann fór af velli fyrir Matthías Vilhjálmsson.

Vålerenga er í fimmta sæti deildarinnar með 29 stig.


Athugasemdir
banner
banner
banner