Lið vikunnar í enska - Ronaldo og Lukaku í liðinu


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images

Meistararnir í Manchester City unnu 1-0 sigur gegn Leicester, Liverpool vann 3-0 sannfærandi gegn Leeds og Evrópumeistarar Chelsea lögðu Aston Villa með sömu markatölu.
Arsenal kom sér loks á blað með 1-0 sigri gegn Norwich, Brighton vann Brentford og Tottenham fékk óvæntan 3-0 skell gegn Crystal Palace.
Garth Crooks hjá BBC velur úrvalslið vikunnar.

Markvörður: Edouard Mendy (Chelsea) - Varði nokkrum sinnum vel og kom í veg fyrir að Aston Villa næði að jafna í 1-1.

Mynd: Getty Images

Vörn: Trent Alexander-Arnold (Liverpool) - Rosaleg gæði í fyrirgjöf hans þegar Salah kom Liverpool yfir.

Mynd: Getty Images

Vörn: Thiago Silva (Chelsea) - Var réttur maður á réttum stað trekk í trekk.

Mynd: EPA

Vörn: Virgil van Dijk (Liverpool) - Öflugur varnarlega og stórhættulegur í föstum leikatriðum.

Mynd: Getty Images

Vörn: Luke Shaw (Man Utd) - Skapaði heilmikið fyrir samherja sína.

Mynd: EPA

Miðja: Bernardo Silva (Man City) - Skoraði sigurmarkið gegn Leicester.

Mynd: Getty Images

Miðja: Bruno Fernandes (Man Utd) - Skoraði glæsilegt mark.

Mynd: EPA

Miðja: Thiago Alcantara (Liverpool) - Frábær á miðjunni gegn Leeds.

Mynd: EPA

Sókn: Wilfried Zaha (Crystal Palace) - Gerði varnarmönnum Tottenham lífið leitt.

Mynd: Getty Images

Sókn: Romelu Lukaku (Chelsea) - Skoraði tvö mörk, hans fyrstu mörk á Stamford Bridge.

Mynd: EPA

Sókn: Cristiano Ronaldo (Man Utd) - Þvílík endurkoma.

Mynd: EPA


Mynd: BBC




