Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 13. október 2019 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Fernandinho að framlengja við Man City
Fernandinho er búinn að vera frábær með Manchester City
Fernandinho er búinn að vera frábær með Manchester City
Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Fernandinho er við það að framlengja samning sinn við Manchester City.

Fernandinho er 34 ára gamall og hefur verið lykilmaður hjá City síðustu ár.

Hann hefur tekið við leiðtogahlutverkinu af Vincent Kompany sem ákvað að fara aftur til Anderlecht eftir síðasta tímabil.

Brasilíumaðurinn hefur fengið það hlutverk að leysa af í vörninni vegna meiðslavandræða og á nú von á því að framlengja samning sinn um ár.

Fernandinho hefur spilað 270 leiki og skorað 23 mörk fyrir City og unnið ensku úrvalsdeildina þrisvar sinnum.
Athugasemdir
banner
banner