Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 13. október 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Jorginho í skýjunum: Áttum þetta skilið
Mynd: Getty Images
Jorginho, miðjumaður ítalska landsliðsins, var í skýjunum eftir 2-0 sigur ítalíu á Grikklandi í gær en Ítalía er komið á EM 2020.

Jorginho skoraði í sigrinum á Grikklandi en Ítalía hefur unnið alla leiki sína í undankeppninni og tryggði sæti sitt í gær.

„Þetta voru frábær úrslit og sérstaklega eftir þessa hryllilegu tíma sem við höfum gengið í gegnum síðustu tvö ár. Við áttum þetta skilið og erum í skýjunum," sagði Jorginho.

Blaðamaður Rai Sports benti á vítaspyrnutölfræði hans á ferlinum en hann hefur skorað úr 93,7 prósent af vítunum.

„Ertu að reyna að setja örlög á mig? Ég hef lagt mikla vinnu í vítaspyrnur en ég er ánægðari með úrslitin fyrir liðið," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner