Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. október 2020 19:30
Aksentije Milisic
Ter Stegen nálægt nýjum samningi - Verður einn af launahæstu leikmönnum Barcelona
Mynd: Getty Images
Marc-Andre ter Stegen, markvörður Barcelona, er sagður vera afar nálægt því að skrifa undir nýjan fimm ára samning við félagið.

Þessi 28 ára gamli markvörður á tvö ár eftir af núverandi samningi. Hann hefur verið orðaður við Chelsea, Juventus og Bayern Munchen en nú greina spænskir miðlar frá því að hann sé að fara skrifa undir hjá Börsungum.

Ter Stegen kom frá Monchengladbach árið 2014 en hann verður einn af launahæstu leikmönnum Barcelona, á eftir Lionel Messi, ef hann samþykkir samninginn.

Chelsea var orðað við leikmanninn í sumar en félagið hafði áhuga á að fá hann til þess að leysa Kepa Arrizabalaga af hólmi. Það gerðist hins vegar ekki og fékk Chelsea Edouard Mendy frá Rennes á 22 milljónir punda.

Ter Stegen á enn eftir að spila fyrir Barcelona á þessari leiktíð en hann fór í aðgerð á hné í sumar. Hann hefur sjálfur áður sagt að hann vilji spila áfram fyrir Barcelona og hvergi annars staðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner