Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 13. nóvember 2021 21:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Memphis framúr Nistelrooy - Robben og Bergkamp næstir
Mynd: EPA
Holland mistókst að komast á HM í kvöld en liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Svartfellingum eftir að hafa náð tveggja marka forskoti.

Memphis Depay leikmaður Barcelona skoraði bæði mörk Hollendinga en hann er orðinn fjórði markahæsti leikmaður í sögu hollenska landsliðsins.

Hann er í fjórða sæti ásamt Arjen Robben og Dennis Bergkamp með 37 mörk. Hann fór uppfyrir Ruud Van Nistelrooy fyrrum leikmann Manchester United með mörkunum gegn Svartfellingum.

Holland mætir Noregi í lokaumferðinni og spurning hvort Memphis fari enn ofar á markalistanum eftir þann leik. Það er enn svolítið í efstu þrjá.

Efstu 3
Robin Van Persie 50 mörk
Klaas Jan Huntelaar 42 mörk
Patrick Kluivert 40 mörk
Athugasemdir
banner
banner
banner