Portúgalski fótboltamaðurinn Cristiano Ronaldo er búinn að hlaða byssuna og er nú farinn að skjóta úr henni, en hann skýtur á ansi marga í viðtali sínu við Piers Morgan.
Morgan tók viðtal við Ronaldo á dögunum og verður það sýnt í tveimur pörtum á miðvikudag og fimmtudag en hann talar um að Manchester United hafi svikið sig.
Ronaldo segist ekki bera virðingu fyrir Erik ten Hag, stjóra United og þá veður hann líka í fyrrum samherja sinn, Wayne Rooney.
Rooney gagnrýndi Ronaldo og viðhorf hans í viðtali við talkSPORT, en þar hvatti hann félagið til að losa sig við hann og sagði að Ronaldo væri ekki sami leikmaðurinn og hér áður fyrr.
Ronaldo var spurður út í þessa gagnrýni frá leikmanni sem hann spilaði með í fimm ár hjá United en portúgalski sóknarmaðurinn skaut á Rooney og segir hann öfundsjúkan.
„Ég veit ekki af hverju hann gagnrýnir mig svona mikið. Það er líklega af því ferillinn hans er búinn og ég er enn að spila í háum gæðaflokki,“ sagði Ronaldo við Morgan.
„Ég ætla ekki að segja ég líti betur út en hann, en það er samt satt,“ sagði Ronaldo ennfremur. Það vantar þó enn samhengi í hverju hann var nákvæmlega að svara þarna en það kemur væntanlega í ljós þegar viðtalið birtist í heild sinni.
Athugasemdir