Fotbolti.net
13.11.23 - 17:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Emil Atlason áfram í Stjörnunni (Staðfest) - „Við erum bara rétt að byrja!"

Emil Atlason áfram í Stjörnunni (Staðfest) - „Við erum bara rétt að byrja!"
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Emil Atlason, markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar tímabilið 2023, hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnunar.

Hann hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2026.
Emil er þrítugur framherji sem skoraði 17 mörk í 21 deildarleik á tímabilinu.

„Ég vil byrja á því að henda í risastórt shoutout á Silfurskeiðina og áhorfendur sem sýndu okkur mikilvægan stuðning þetta árið.

Þið eruð ótrúleg! Sjálfur hef eg ekki upplifað jafn þéttan hóp á mínum ferli. Liðið er á flottum stað og er ég mjög ánægður að geta verið hér áfram, því við erum bara rétt að byrja! Við sjáum vonandi stappfullan Samsungvöll á næsta tímabili því við ætlum okkur stóra hluti!"
sagði Emil Atlason um nýja samning sinn.

Íslands- og bikarmeistarar Víkings sýndu Emil áhuga en hann ákvað að halda tryggð við Garðarbæjarfélagið. Hann kom til Stjörnunnar frá HK fyrir tímabilið 2020.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.