Fotbolti.net
13.11.23 - 17:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jakobína í Breiðablik (Staðfest)

Jakobína í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Breiðablik hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni því Jakobína Hjörvarsdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

Jakobína kemur frá Þór/KA þar sem hún hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil.
Hún er varnarmaður sem var í stóru hlutverki í U19 landsliðinu sem fór á lokamót í sumar. Hún hefur spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður.

Hún er fædd árið 2004 og á að baki 57 leiki í efstu deild. Í þeim hefur hún skorað tvö mörk.

Hún á að baki 25 leiki fyrir U16-U19 og tvo leiki fyrir U23 landsliðið.

Jakobína er fyrsti leikmaður sem Nik Chamberlain fær í raðir Breiðabliks eftir að hann tók við sem þjálfari liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.