Fotbolti.net
13.11.23 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Marcelino tekinn við Villarreal (Staðfest)

Marcelino tekinn við Villarreal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Villarreal er búið að staðfesta ráðningu á Marcelino í þjálfarastarfið hjá félaginu og gerir hann samning sem gildir í tvö og hálft ár, eða til sumarsins 2026.
Marcelino snýr aftur til Villarreal eftir að hafa gert góða hluti með félagið frá 2013 til 2016. Síðan þá hefur hann stýrt Valencia, Athletic Bilbao og Marseille en hefur verið án starfs síðan hann lét af störfum í lok september eftir slæma byrjun í franska boltanum.

Marcelino tekur við af Pacheta sem entist aðeins 62 daga í starfi, en Villarreal var með 12 stig eftir 12 umferðir í spænsku deildinni þegar þjálfarinn var rekinn.

Villarreal er komið með sex stig eftir þrjár umferðir í Evrópudeildinni og stefnir upp úr riðlinum sínum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.