Fotbolti.net
13.12.21 - 21:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson SteinkeUngstirnin

Þorsteinn Aron á leiðinni í Stjörnuna á láni

Í leik með Fulham

Í leik með Fulham

Canon

Mynd: Fulham

Þorsteinn Aron Antonsson, leikmaður Fulham á Englandi, er á leiðinni í Stjörnuna á láni. Það er Arnar Laufdal Arnarsson, þáttarstjórnandi Ungtirnanna, sem greinir frá þessu á Twitter og þjálfari Stjörnunnar staðfesti að einungis ætti eftir að klára pappírsmál vegna skiptanna.

Þorsteinn er uppalinn á Selfossi en hélt til Englands haustið 2020 eftir gott tímabil með Selfossi í 2. deild og var hann valinn efnilegasti maður deildarinnar. Hann varð enskur meistari með U18 ára liði Fulham í vor.
„Garðbæingar halda áfram að yngja leikmannahópinn Þorsteinn Aron (2004 / hafsent) er að ganga til liðs við Stjörnuna á láni frá Fulham," skrifar Arnar í færslunni.

Eins og hann skrifar þá er Þorseinn sautján ára miðvörður. Hann lék tvo vináttuleiki með U19 ára landsliðinu í sumar.

„Hann æfði með okkur í dag og verður gaman að fá hann inn í okkar flotta hóp. Það er mikið af ungum leikmönnum í hópnum," sagði Ágúst Gylfason.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.