Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. febrúar 2021 09:40
Ívan Guðjón Baldursson
Grikkland: Theódór Elmar spilaði í janftefli
Mynd: Getty Images
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Asteras Tripolis 0 - 0 Lamia

Theódór Elmar Bjarnason lék allan leikinn er Lamia gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn Asteras Tripolis.

Jafnræði var með liðunum í tíðindalitlum leik þar sem aðeins fjögur skot rötuðu á markrammann.

Elmar var fenginn til Lamia til að hjálpa í fallbaráttunni og hefur liðinu gengið þokkalega vel í undanförnum leikjum.

Lamia er þó áfram í fallbaráttu, með 12 stig eftir 19 umferðir.

Göteborg 0 - 0 Helsingborg

Degerfors 0 - 0 Brage

Sirius 1 - 1 Flora

Örebro W 1 - 4 Linköping W


Þá fóru ýmsir æfingaleikir fram í Svíþjóð þar sem nokkrir Íslendingar komu við sögu.

Berglind Rós Ágústsdóttir spilaði 87 mínútur í sínum fyrsta leik fyrir Örebro er liðið tapaði gegn Linköping.
Athugasemdir
banner
banner
banner