Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. febrúar 2021 20:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Harder og Eriksson opna fyrir skilaboð í kvöld
Eriksson og Harder spila saman hjá Chelsea.
Eriksson og Harder spila saman hjá Chelsea.
Mynd: Getty Images
Tvær af bestu fótboltakonum í heimi, þær Magdalena Eriksson og Pernille Harder, ætla að nota kvöldið á þessum Valentínusardegi í að spjalla við og aðstoða fólk sem á erfitt með að koma út úr skápnum fyrir fjölskyldu og vinum.

Eriksson og Harder spila saman með enska stórliðinu Chelsea og hafa þær verið í rómantísku sambandi frá 2014.

Harder skrifaði á Twitter í kvöld: „Ég er heppin að eiga fjölskyldu sem var ekkert annað en ánægð fyrir mína hönd þegar ég kom út fyrir sjö árum síðan."

„Ég veit að það er mikið af fólki sem á erfitt með að segja vinum sínum og fjölskyldu að það sé samkynhneigt. Það hlýtur að vera versta tilfinning í heimi."

„Það á að vera eðlilegt að koma út úr skápnum og sömuleiðis á það að vera samþykkt af öllum. Ég og Magda Eriksson munum opna fyrir skilaboð til okkar fyrir öll þau sem eiga erfitt með að koma út, vilja vita um reynslu okkar eða bara eru að leita af góðum ráðum á Valentínusardeginum."

Miklar fyrirmyndir á ferðinni þarna.


Athugasemdir
banner
banner
banner