14.02.22 - 23:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Námið stærsta ástæðan í ákvörðun Breka - „Ekki auðvelt"

Marki fagnað í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Breki í leik gegn Breiðabliki tímabilið 2019.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hemmi sýndi stöðunni skilning.

Breki Ómarsson komst í síðustu viku að samkomulagi við ÍBV um riftun á samningi sínum við félagið. Breki er uppalinn hjá ÍBV en er í krefjandi námi, meistaranámi í viðskiptafræði, í Reykjavík sem spilaði stórt hlutverk í ákvörðun hans. Leikmaðurinn ræddi við Fótbolta.net í dag.
„Það er ekkert endilega eitthvað eitt sem varð til þess að ég tók þessa ákvörðun, þetta var eitthvað sem var búið að blunda í mér í smá tíma, ekkert tengt neinu við þetta tímabil heldur eitthvað sem ég hafði hugsað eftir síðasta tímabil. Ég ætlaði að gefa þessu séns og undirbúningstímabilið hefur gengið vel persónulega. Ég er í háskóla í bænum, í meistaranámi og það er búið að vera erfitt fyrir mig að fara mikið til Vestmannaeyja í vetur. Það var kannski stærsta ástæðan," sagði Breki.
Hann segir að Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, hafi sýnt stöðunni skilning.
„Hemmi skildi mig vel og það er ekkert alveg útilokað að ég spili með ÍBV. Ég ætlaði aðeins að taka stöðuna á þessu. Það voru nokkrir þættir sem spiluðu inn í."
Þú ert ekki búinn að útiloka að spila með ÍBV, ertu að kanna hvað er í boði fyrir þig á höfuðborgarsvæðinu?
„Ég er aðeins að taka stöðuna á því og áhuginn á mér hefur verið meiri en ég bjóst við. Það er bara gaman af því. Þetta er áhugi úr öllum hillum eins og maður segir. Menn hafa verið að taka stöðuna, forvitnast og spyrja og ég er tilbúinn að skoða allt. Ef það kemur eitthvað spennandi upp þá er hægt að skoða það. Það eru einhver félög búin að hafa samband og vilja ræða betur við mig. Ég var búinn að taka ákvörðun að taka síðustu viku í frí, sagði mönnum að heyra í mér í þessari viku og vona að það detti inn eitthvað mjög spennandi."
Varðandi ÍBV og það að þú útilokar ekki að spila með félaginu, ertu með ÍBV í bakhöndinni ef ekkert spennandi kemur upp?
„Nei, það er ekkert svoleiðis. Þegar ég rifti þá ræddi ég við Hemma. Fyrsta hugmyndin var hvort ég ætti að bíða og taka mér stutta pásu. Þetta snýst ekki um að ég líti í kringum mig og ef það kemur ekkert spennandi að þá muni ég spila með ÍBV. Ég ræddi við Daníel [Geir Moritz] formann og átti mjög erfitt með að taka þessa ákvörðun. Þetta var ekki auðvelt en taldi þetta best á þessum tímapunkti, ætla að hugsa sjálfur hvað ég ætla gera."
Breki, sem er 23 ára sóknarmaður, skoraði fjögur mörk í fimmtán leikjum með ÍBV í fyrra sem vann sér sæti í efstu deild með því að enda í 2. sæti Lengjudeildarinnar.
„Ég átti virkilega gott tímabil með ÍBV í fyrra og það var gaman að spila hlutverk í því að liðið færi upp. Maður ber alltaf taugar þangað, liðið mun spila í efstu deild og það er auðvitað spennandi kostur. Þeir töluðu þannig við mig að þeir væru alltaf tilbúnir að taka á móti mér aftur."
„Þetta var búið að liggja svolítið á mér fyrir áramót, hefði í raun viljað gera þetta þá, hefði þá getað tekið mér smá pásu og séð hvernig staðan væri í janúar. Ég beið með að taka þessa ákvörðun fram að þessum tímapunkti, fannst þetta vera það rétta í stöðunni núna."
Muntu skoða öll tilboð eða horfiru eingöngu í tilboð úr efstu deild?
„Ég tel að ég sé með nægileg gæði til að spila í annarri af efstu tveimur deildunum. Ég er á því að ég hafi margt fram að færa og þeir sem fylgdust með mér í fyrra vita það. Maður veit samt aldrei í fótbolta og ég útiloka ekkert."
Þarftu að drífa þig að taka ákvörðun svo þú getir byrjað að æfa fótbolta með öðru liði?
„Ég er búinn að vera æfa með öðru liði í allan vetur þar sem ég gat ekki verið í Eyjum. Ég er í toppstandi og svoleiðis en ég tók mér síðustu viku í frí. Það eru einhver lið búin að bjóða mér að koma á æfingar og svoleiðis en ég ætla að taka mér góðan tíma í að taka ákvörðun um næsta skref. Ég ætla ekki að gera þetta í einhverjum flýti og sjá svo strax eftir því. Félög hafa spurst fyrir en viðræður eru ekki komnar neitt lengra en það," sagði Breki.