Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. febrúar 2023 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fær tíuna frá besta vini sínum - „Besti fótboltamaður á Íslandi"
Kiddi skoraði gegn KR.
Kiddi skoraði gegn KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson er mættur aftur í Val eftir ár í burtu hjá FH. Hann var til viðtals eftir sigurinn gegn KR í Lengjubikarnum á sunnudag.

Hjá Val hittir hann fyrir góðan vin sinn, Aron Jóhannsson, þeir léku saman hjá Fjölni á sínum tíma.

Kristinn lék í treyju númer 10 í leiknum gegn KR, 10 er einmitt númerið sem Aron var með á bakinu á síðasta tímabili.

„Já, hann lætur mig hafa tíuna. Ég held að hann verði númer 22."

„Það er geggjað að fara spila með honum, hann er náttúrulega besti fótboltamaður á Íslandi. Svo er hann líka besti vinur minn. Það er ógeðslega gaman að fara spila með honum,"
sagði Kristinn.

Aron lék ekki með Val gegn KR þar sem hann var veikur.
Kristinn Freyr: Rúnar henti í léttan brandara og ég svaraði með öðrum
Athugasemdir
banner
banner