14.03.22 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Er Guðjón Stjörnumaður eða KR-ingur? - „Hægt að eiga tvö heimili"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Já, ég er mjög sáttur [með ferilinn], þakklátur að hafa fengið að spila úti [í atvinnumennsku] og alls konar ævintýri. Ég fékk að ferðast um allan heiminn og kynnast skemmtilegu fólki. Ég er mjög sáttur," sagði Guðjón Baldvinsson í viðtali við Fótbolta.net í síðustu viku.
Guðjón hefur lagt skóna á hilluna vegna hnémeiðsla en hann lék með fjórum liðum erlendis og tveimur liðum hér á Íslandi á sínum ferli. Þá lék hann fjóra A-landsleiki.
Sjá einnig:
Gaui Baldvins: Þurfti að selja mér það margoft að gefast upp

„Ljúfustu stundirnar voru þegar maður lyfti bikurunum, tvennan með KR og bikarinn með Stjörnunni. Það er eitthvað sem stendur upp úr og eins þegar maður fór upp um deildir - það var geggjað."
Talandi um KR og Stjörnuna. Hvor er hann KR-ingur eða Stjörnumaður? Í færslum á samfélagsmiðlum notaði KR orðin „heim í KR" um endurkomu Guðjóns í KR fyrir tímabilið 2021 og Stjarnan skrifaði að það rynni blátt blóð í æðum Guðjóns. Það skal tekið fram að hann er uppalinn í Stjörnunni.
„Ég vil bara meina að þau eigi sitthvorn helminginn hjá mér. Mér leið rosalega vel á báðum stöðum. Þó að ég sé uppalinn í Stjörnunni þá leið mér alltaf eins og heima í KR. Rúnar [þjálfari] og félagar létu mér líða mjög vel og ég átti frábæra tíma þar. Ég held að það sé alveg hægt að eiga tvö heimili," sagði Guðjón og brosti.
Sérðu það fyrir þér að kíkja á völlinn í sumar?
„Ég mun klárlega kíkja en ég verð ekki á öllum leikjum. Það þarf að taka sumarfrí og njóta líka. Já, ég hugsa það [að ég fari bæði í Vesturbæinn og í Garðabæinn]. Strákurinn minn er í fótbolta og honum finnst gaman að horfa á þetta. Við munum fara saman á einhverja góða leiki," sagði Guðjón.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.