Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
   mið 14. apríl 2021 09:32
Magnús Már Einarsson
Djibril Cisse í fjórðu deildina í Bandaríkjunum
Djibril Cisse, fyrrum framherji Liverpool og QPR, hefur óvænt samið við Panathinaikos Chicago í fjórðu deildinni í Bandaríkjunum.

Hinn 39 ára gamli Cisse spilaði síðast með Yverdon Sports í þriðju deildinni í Sviss árið 2018. Þar varð hann markahæstur í deildinni með 24 mörk.

Panathinaikos Chicago er hálfatvinnumannalið sem feðgarnir Dimitrios og Denny Chronopoulos stofnuðu en þeir eru stuðningsmenn gríska stórliðsins Panathinaikos.

Cisse spilaði einmitt með Panathinaikos í Grikklandi frá 2009 til 2011 þar sem hann skorað 47 mörk í 61 leik og varð tvívegis markakóngur deildarinnar.

Cisse hefur komið víða við á ferlinum og hann mun nú spreyta sig í fjóðru deildinni í Bandaríkjunum.
Athugasemdir