Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 14. maí 2022 19:36
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Chelsea og LIverpool: Díaz maður leiksins
Liverpool er enskur bikarmeistari 2022
Liverpool er enskur bikarmeistari 2022
Mynd: EPA
Kólumbíski vængmaðurinn Luis Díaz var besti maður vallarins er Liverpool varð enskur bikarmeistari eftir sigur á Chelsea á Wembley í dag.

Díaz átti stórkostlegan leik og ógnaði marki í hvert einasta sinn sem hann var með boltann. Hann komst nálægt því að skora nokkrum sinnum í leiknum en Edouard Mendy sá við honum í fyrri hálfleik og þá skaut hann í stöng undir lok leiksins.

Hann fær 9 fyrir frammistöðuna eins og Alisson Becker, markvörður liðsins. Trent Alexander-Arnold, Thiago og Ibrahima Konate fá allir 8.

Romelu Lukaku fær 5 í liði Chelsea eins og Cesar Azpilicueta.

Chelsea: Mendy (8), Chalobah (7), Silva (8), Rudiger (7), James (8), Jorginho (8), Kovacic (7), Alonso (8), Mount (7), Pulisic (6), Lukaku (5).
Varamenn: Kante (6), Ziyech (7), Azpilicueta (5), Loftus-Cheek (6), Barkley (7)

Liverpool: Alisson (9), Alexander-Arnold (8), Konate (8), Van Dijk (7), Robertson (7), Thiago (8), Henderson (7), Keita (7), Salah (6), Mane (7), Diaz (9).
Varamenn: Jota (7), Milner (7), Matip (7), Tsimikas (7)
Athugasemdir
banner
banner