Fotbolti.net
05.10.26 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson

Proenca: Markmiðið að vera allir saman í næsta glugga

Proenca: Markmiðið að vera allir saman í næsta glugga
Canon

Mynd: EPA

Pedro Proenca, forseti portúgalska fótboltasambandsins, hefur tjáð sig opinberlega varðandi Cristiano Ronaldo málið sem hefur verið helsta umtalsefni allra íþróttafjölmiðla Portúgals síðustu daga.
Krísufundur með Ronaldo
TENGT EFNI

Krísufundur með Ronaldo

Ronaldo fór í fýlu og yfirgaf landsliðsbúðir Portúgal í síðustu viku. Í stað þess að halda málinu innan portúgalska landsliðsins og fótboltasambandsins ákvað stórstjarnan að birta færslu á samfélagsmiðlum, auk þess að nota málpípu sína í portúgölskum fjölmiðlum til að tjá sig um meint svik af hálfu Jorge Jesus landsliðsþjálfara.

Ronaldo fangaði þannig athygli alls fótboltaheimsins sem hefur verið að fylgjast náið með þróun mála. Nú er útlit fyrir að Ronaldo verði með í næsta landsliðshópi Portúgal sem mætir aftur til leiks í Þjóðadedildinni í nóvember eftir að hafa unnið fjóra leiki af fjórum undir stjórn Jesus.

„Portúgalska fótboltasambandið leysir úr svona ágreiningum innanhúss. Sem betur fer er mjög sterkt samband á milli Jorge Jesus og Cristiano Ronaldo, annars væri Ronaldo mögulega hættur með landsliðinu," sagði Proenca. „Við munum fara yfir stöðu mála í rólegheitunum á næstu dögum. Markmiðið er að við séum allir saman með landsliðinu í landsleikjaglugganum í nóvember."

Skoðanir á persónuleika Ronaldo eru mjög tvískiptar en það leikur enginn vafi á því að hann er einn af allra bestu fótboltamönnum í sögu íþróttarinnar.

„Cristiano Ronaldo er besti fótboltamaður sögunnar. Hann hefur gefið portúgalska landsliðinu meira en tvo áratugi af ferli sínum og er æðsta tákn portúgalskrar sjálfsmyndar," hélt Proenca áfram.

„Hann á án nokkurs vafa skilið að vera partur af portúgalska landsliðinu vegna hæfileika sinna. Það sem gerðist á milli hans og Jorge Jesus er misskilningur sem við þurfum að leysa úr. Cristiano er ennþá partur af landsliðinu. Hann er tákn landsliðsins og bar fyrirliðabandið í fyrsta leik landsleikjagluggans.

„Cristiano Ronaldo hefði getað lagt landsliðsskóna á hilluna eftir HM í sumar en hann gerði það ekki út af ástinni sem hann hefur fyrir landsliðið. Hann tengist portúgölsku þjóðinni sterkum böndum og mun alltaf vera hluti af arfleifð okkar."
Proenca: Markmiðið að vera allir saman í næsta glugga
Canon

Mynd: EPA

Proenca: Markmiðið að vera allir saman í næsta glugga
Canon

Mynd: EPA

Proenca: Markmiðið að vera allir saman í næsta glugga
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.