lau 14. maí 2022 10:00
Victor Pálsson
Lampard þakkaði leikmanni Chelsea fyrir - Skoraði gegn Leeds
Mynd: Getty Images

Frank Lampard, stjóri Everton, þakkaði Mason Mount, leikmanni Chelsea, í vikunni eftir leik Chelsea við Leeds í ensku úrvalsdeildinni.


Chelsea vann 3-0 útisigur á Leeds mjög sannfærandi þar sem Mount skoraði fyrsta mark leiksins og lagði upp það annað á Christian Pulisic.


Þau úrslit gera mikið fyrir Everton í fallbaráttunni en liðið er nú tveimur stigum á undan Leeds og á eftir að spila leik meira eða þrjá talsins.


Lampard er auðvitað fyrrum leikmaður og þjálfari Chelsea og var mjög þakklátur Mount sem var besti maður vallarins að margra mati.


Everton gerði jafntefli við Watford í sömu umferð og spilar svo við Brentford á sunnudag.


„Þetta mark var mjög gagnlegt. Ég mun senda honum skilaboð og þakka fyrir," sagði Lampard.


„Ég mun þakka honum fyrir seinna. Svona hlutir eru ekki í þínum höndum en Mason er frábær leikmaður og ég er hæstánægður fyrir hans hönd."


„Chelsea gerði okkur greiða með þessum úrslitum en við þurfum að gera okkar og koma þessu yfir línuna."









Athugasemdir
banner
banner
banner
banner