Fotbolti.net
14.06.13 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Owen Coyle tekur við Wigan (Staðfest)

Owen Coyle tekur við Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Owen Coyle hefur verið ráðinn stjóri Wigan en hann tekur við liðinu af Roberto Martinez sem fór á dögunum til Everton.

Coyle var síðast stjóri Bolton en hann var rekinn í október síðastliðnum.
Coyle mun nú fá það verkefni að reyna að koma Wigan aftur upp í ensku úrvalsdeildina.

,,Af öllum þeim sem sóttu um þá taldi ég að hann væri bestur, hann kom Burnley upp í ensku úrvalsdeildina,\" sagði Dave Whelan formaður Wigan.

Margir sóttu um starfið hjá Wigan en fyrir utan Coyle þóttu Steve McClaren og Rene Meulensteen líklegastir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.