Fotbolti.net
14.06.13 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Pellegrini tekinn við Manchester City (Staðfest)

Pellegrini tekinn við Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manuel Pellegrini hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Manchester City en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

Pellegrini tekur við af Roberto Mancini sem var rekinn undir lok síðasta tímabils.
Pellegrini er frá Síle en hann á að baki yfir 25 ár í þjálfun í Suður-Ameríku og Evrópu.

Undanfarin níu ár hefur Pellegrini þjálfað á Spáni þar sem hann var hjá Villarreal, Real Madrid og nú síðast Malaga.

Argentínumaðurinn Ruben Cousillas verður aðstoðarmaður Pellegrini en hann var í sama hlutverki hjá Malaga.

Heimild: Heimasíða Manchester City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.