Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. júní 2022 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aston Villa í viðræðum við Young um nýjan samning
Mynd: Aston Villa
Ashley Young og Aston Villa ræða þessa dagana um mögulega framlengingu á samningi Englendingsins við enska félagið.

Young gekk í raðir Villa í annað sinn á ferlinum síðasta sumar og kom við sögu í 24 deildarleik og einum bikarleik á tímabilinu.

Young verður 37 ára í næsta mánuði en hann getur bæði spilað á kantinum sem og í bakverði.

Á árunum 2007-2011 lék Young í fyrra skiptið á sínum ferli með Villa. Þá skoraði hann 30 mörk í 157 deildarleikjum. Í kjölfarið gekk hann svo í raðir Manchester United.
Athugasemdir
banner
banner
banner