Fotbolti.net
14.06.23 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jobe Bellingham í Sunderland (Staðfest)

Jobe Bellingham.

Jobe Bellingham.

Canon

Mynd: Getty Images

Jobe Bellingham, yngri bróðir Jude, er genginn í raðir Sunderland frá Birmingham.

Báðir Bellingham-bræðurnir hafa því fært sig um set í dag, en í morgun var það staðfest að Jude væri búinn að skrifa undir hjá Real Madrid.
Sunderland greiðir um 3 milljónir punda fyrir Bellingham.

Báðir Bellingham-bræðurnir ólust upp hjá Birmingham. Jobe, sem er 17 ára gamall, hefur leikið alls 26 keppnisleiki með aðalliði Birmingham þrátt fyrir ungan aldur.

Hann hefur þá leikið með U16, U17 og U18 landsliðum Englands en hann er núna kominn til Sunderland.

Kristjaan Speakman, yfirmaður fótboltamála hjá Sunderland, er góður kunningi Bellingham-fjölskyldunnar en hann starfaði áður í akademíu Birmingham og þekkir því bræðurna báða vel.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.