Hrannar Snær Magnússon er markahæsti leikmaður Aftureldingar á tímabilinu eftir tíu leiki spilaða í Bestu deildinni. Hrannar hefur skorað þrjú mörk og þar af eru tvö sigurmörk.
Ólafsfirðingurinn, sem er 23 ára, er á sínu öðru tímabili hjá Aftureldingu og ákvað í síðasta mánuði að framlengja samninginn sinn í Mosó. Hann var á vetur á blaði hjá Val.
Hrannar, sem hefur spilað á vinstri kantinum hjá Afturelding, svaraði nokkrum spurningum frá Fótbolta.net.
Ólafsfirðingurinn, sem er 23 ára, er á sínu öðru tímabili hjá Aftureldingu og ákvað í síðasta mánuði að framlengja samninginn sinn í Mosó. Hann var á vetur á blaði hjá Val.
Hrannar, sem hefur spilað á vinstri kantinum hjá Afturelding, svaraði nokkrum spurningum frá Fótbolta.net.
Var erfið ákvörðun að framlengja samninginn?
„Nei, þetta var í raun frekar einföld ákvörðun þegar upp var staðið. Ég þurfti auðvitað að velta ýmsu fyrir mér - hvað hentar mér best sem leikmanni og manneskju, hvert verkefnið stefnir og hvernig umhverfið er. Afturelding er með mjög spennandi verkefni í gangi, frábært þjálfarateymi og metnaðarfulla leikmenn. Það gaf mér góða trú á því að þetta væri rétti staðurinn fyrir mig að vera áfram," segir Hrannar.
Hann er uppalinn hjá KF en í 2. flokki var hann á Hlíðarenda og lék með 2. flokki Vals og KH. Í vetur var hann svo á blaði hjá Val.
Varstu meðvitaður um áhugann í vetur og hvernig kom til að þú fórst í Val í 2. flokki?
„Ég frétti í vetur að Valur hefði áhuga, og það er auðvitað alltaf hvetjandi þegar félög á borð við Val fylgjast með manni, en pældi svo sem ekki mikið í því þar sem ég var samningsbundinn."
„Þegar ég var á annars flokks aldri var ég í bænum og það endaði þannig að ég fór að æfa hjá Val og ég kunni mjög vel við mig á Hlíðarenda."
Var einhver rödd í höfðinu að segja þér að vera lengur með þann möguleika að semja annars staðar, geyma það að skrifa undir, ef eitthvað kæmi upp?
„Það er eðlilegt að maður íhugi alla möguleika og haldi dyrunum opnum, sérstaklega þegar maður er að taka svona mikilvæga ákvörðun. En á endanum snýst þetta um að treysta innsæinu og velja það sem hentar manni best á því augnabliki. Fyrir mig var það að framlengja við Aftureldingu, þar sem verkefnið hér er bara mjög spennandi."
Hrannar er eins og félagið, á sínu fyrta ári í efstu deild.
Hvernig hefur verið að koma inn í Bestu deildina, vissir þú við hverju þú áttir að búast?
„Það hefur fyrst og fremst verið spennandi og skemmtilegt og maður sækist alltaf eftir því að spila á hæsta leveli. Ég vissi að þetta yrði krefjandi en á sama tíma finnst mér ég eiga heima þarna. Þetta hefur verið mjög lærdómsríkt hingað til, og ég er að læra og bæta mig með hverjum leik."
Hvernig ertu að fíla þig á vinstri kantinum, og mörkin, eru þau framar væntingum?
„Mér líður mjög vel á kantinum – það hentar mér að fá svæði, taka menn á og koma mér í færi."
„Ég reyni alltaf að leggja mitt af mörkum fyrir liðið og það er auðvitað frábært að hafa náð að skora mörk sem skiluðu stigum. Maður setur sér alltaf persónuleg markmið, en fyrst og fremst vill maður að liðinu gangi vel."
Þú tókst vítið gegn Víkingi, það kom smá á óvart, var það alltaf augljóst fyrir þér að þú tækir það?
„Á þeim tímapunkti var ekki búið að taka fram hver væri á vítum. Þegar það var brotið á mér fannst mér bara liggja beint við að ég tæki það sjálfur."
Þegar þú komst í Aftureldingu fyrir tímabilið 2024, var það auðveld ákvörðun og kom þér á óvart að lið sem stefndi upp vildi leikmann úr liði sem féll úr deildinni?
„Það kom mér kannski ekki beint á óvart – ég vissi að ég hafði bætt mig mikið sem leikmaður og að mín framganga hefði vakið athygli. Afturelding var með mjög skýra sýn á hvernig menn vildu spila og hvar ég gæti passað inn í það plan. Samræðurnar við þjálfarateymið voru góðar og gáfu mér trú á verkefninu. Það var þannig séð auðveld ákvörðun, því það var augljóst að þeir höfðu trú á mér og þeim fannst ég passa vel inn í hópinn."
KA hefur verið duglegt að fá leikmenn af Norðurlandi í sínar raðir. Varstu einhvern tímann nálægt því að fara í KA?
„Ég spilaði með KA í yngri flokkum og æfði um tíma með meistaraflokki."
„Þeir hafa tvívegis átt samtöl við mig þegar ég var samningslaus en það fór aldrei lengra en það," segir Hrannar.
Hann verður að öllum líkindum í eldlínunni á morgun þegar Afturelding fær ÍA í heimsókn á Malbikstöðina að Varmá í 11. umferð Bestu deildarinnar. Sá leikur hefst klukkan 19:15.
Athugasemdir