Kólumbíski varnarmaðurinn Jeison Murillo er genginn í raðir Sampdoria frá Valencia.
Murillo er 27 ár gamall og var á láni hjá Barcelona síðari hluta síðasta tímabils en lék aðeins fjóra leiki.
Hann er nú búinn að semja við ítalska félagið Sampdoria eftir félagið komst að samkomulagi við Valencia um kaupverðið.
Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Sampdoria en verður þó á láni í eitt ár áður en Sampdoria greiðir Valencia 15 milljónir evra.
Hann flaug til Genoa í gær til gangast undir læknisskoðun og í kjölfarið skrifaði hann undir.
Athugasemdir