Fotbolti.net
14.07.21 - 10:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

West Ham vill fá Areola frá PSG

West Ham vill fá Areola frá PSG
Canon

Mynd: EPA

West Ham er sagt hafa mikinn áhuga á því að fá Alphonse Areola í sínar raðir frá PSG.

Areola er markvörður sem samningsbundinn er PSG út tímabilið 2022/23. Hjá PSG yrði hann í samkeppni við Keylor Navas og Gianuluigi Donnarumma sem verður að teljast ansi erfið staða fyrir kappann.
Areola var á síðasta tímabili á láni hjá Fulham og nú vill West Ham fá hann á láni út komandi tímabil.

Lukasz Fabianski er aðalmarkvörður West Ham. Areola er 28 ára og er uppalinn hjá PSG.

Hann á að baki 75 deildarleiki fyrir félagið og þrjá A-landsleiki fyrir Frakka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.