Kylian Mbappe, leikmaður PSG í Frakklandi, fær að heyra það á samfélagsmiðlum en hann sýndi furðulega tilburði í gær þegar PSG vann 5-2 sigur á Montpellier.
PSG hefur byrjað tímabilið vel en liðið hefur skorað tíu mörk í fyrstu tveimur leikjum deildarinnar.
Mbappe komst á blað í síðari hálfleiknum í gær en hann virkaði pirraður og fúll allan leikinn.
Hann klúðraði víti í stöðunni 0-0 og undir lok fyrri hálfleiks var PSG í álitlegri skyndisókn þegar Mbappe hætti skyndilega að hlaupa því hann fékk ekki sendinguna.
Vitinha var með boltann og gat hann gefið á Mbappe sem var í hlaupinu. Hann gerði það ekki og senti boltann yfir á Messi, Mbappe til lítillrar gleði sem sveiflaði höndunum og hætti að taka þátt í sókninni.
Myndband af þessu atviki má sjá hér fyrir neðan en óhætt er að segja að Mbappe hefur fengið að heyra það í kjölfarið. Slæmt hugarfar og eigingirni voru á meðal orða sem voru notuð.
Mbappe walks off from the attack after not getting a pass, Just another kid with too much money.. pic.twitter.com/4WBDcJ2KbZ
— Football passion (@Hustlerrs1) August 13, 2022