Fotbolti.net
14.08.23 - 20:38
Ívan Guðjón Baldursson

Nemanja Matic til Rennes (Staðfest)

Nemanja Matic til Rennes (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rennes er búið að festa kaup á serbneska miðjumanninum Nemanja Matic sem kostar um þrjár milljónir evra og gerir tveggja ára samning.

Matic er 35 ára gamall og kemur úr röðum AS Roma, þar sem hann var ekki að búast við stóru hlutverki í vetur.

Hann er partur af uppbyggingunni sem á sér stað hjá Rennes sem endaði í 4. sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð og tekur því þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust.

Rennes er búið að krækja í Enzo Le Fée og Ludovic Blas í sumar fyrir tæpar 40 milljónir evra, Gauthier Gallon sem mun berjast um markmannsstöðuna.

Rennes þarf að fylla í skarðið sem Lesley Ugochukwu skilur eftir sig eftir að hann var seldur til Chelsea.

Nemanja Matic til Rennes (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.