13.08.26 - 22:10
Gylfi Már Þórðarson
Davíð Smári: Fyrri leikurinn sat aðeins í okkur
Auglýsing

Davíð Smári þjálfari Njarðvíkur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Davíð Smári þjálfari Njarðvíkur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Grótta tók á móti Njarðvíkingum á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi í 18. umferð Lengjudeildar karla í kvöld. Til að gera langa sögu stutta þá voru það Njarðvíkingar sem réðu lögum og lofum í leik kvöldsins og fóru með 4-1 sigur af hólmi. Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur var ánægður með leik sinna manna.
Lestu um leikinn: Grótta 1 - 4 Njarðvík
"Heilt yfir er ég mjög sáttur. Mér fannst við fara illa með færin okkar en heilt yfir mjög sáttur við leikinn. Við vorum að spila við ótrúlega vel spilandi og skemmtilegt lið Gróttu og það er erfitt að spila við þá. Fyrri leikurinn sat aðeins í okkur og við náðum að búa til orku úr því í dag. Lykillinn að sigrinum var orkustig, hugrekki og vilji. Það er það sem skiptir mestu máli í því sem við erum að gera sem lið og við náðum að framkalla það hér í dag. "
Njarðvíkingar hafa sigrað sex leiki af síðustu sjö og eru á frábæru skriði í deildinni.
"Menn eru að spila sig saman, við höfum lent í áföllum og þurft að plástra þau allt tímabilið. Fyrirliðinn okkar slítur hásin fyrir mót og þegar við vorum komnir í góðan rytma þá missum við leikmenn óvænt. Við í þjálfarateyminu erum að reyna að bæta liðið, án þess þó að taka hrós af leikmönnunum. Þeir hafa staðið sig ofboðslega vel, verið viljugir og lagt sig alla í verkefnið sem skiptir ofboðslega miklu máli. Það eru margir í þessu Njarðvíkurliði sem hafa ótrúlega mikla hæfileika og mikil gæði. Það sem skiptir mestu máli er að ég er með fullt lið af hungruðum leikmönnum, með það að baki og ákveðinn strúktúr í kringum það þá finnst mér við vera nokkuð gott lið.
Oumar Diouck bætti markamet Njarðvíkur þegar hann skoraði fyrra mark sitt í kvöld en hann þurfti að fara af velli vegna meiðsla þegar liðið var á fyrri hálfleikinn.
"Hann var tæpur fyrir leik og það var varúðarráðstöfun að hann átti bara að spila hálfleik. Hann var farinn að finna fyrir meiðslunum fyrir hálfleik og við hikuðum ekki við að taka hann útaf því staðan var þokkalega góð þó að þetta hafi verið að einhverju leiti opið. "
Allt viðtalið við Davíð Smára má finna í spilaranum hér að ofan