Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 14. september 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Verður Suarez upp í stúku allt tímabilið?
Mynd: Getty Images
Forráðamenn Barcelona gætu látið Luis Suarez sitja upp í stúku á komandi tímabili ef ekki næst samkomulag um starfslok hjá félaginu.

Hinn 33 ára gamli Suarez er ekki inni í áætlunum Ronald Koeman sem tók við Barcelona á dögunum.

Suarez á ár eftir af samningi sínum og hann vill fá samninginn greiddan út. Suarez fær 25 milljónir evra í laun á ári en Barcelona vill ekki borga honum út samninginn.

Juventus vill fá Suarez og Barcelona er tilbúið að láta hann fara fyrir mjög litla upphæð.

Hins vegar þarf fyrst að greiða úr launamálunum og ef það gerist ekki þá gæti farið svo að Suarez sitji upp í stúku á Nou Camp á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner