Fotbolti.net
14.10.17 - 17:49
Elvar Geir Magnússon

FH-ingar heyrðu í Ólafi áður en Heimi var sagt upp

Jón Rúnar og Ólafur Kristjánsson.

Jón Rúnar og Ólafur Kristjánsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður verður alltaf að skoða í kringum sig og sjá hvað er í spilunum. Það var ákvæði í samningi Heimis sem virkaði frá 6. - 15. október og við vorum bundnir af því,\" sagði Jón Rúnar Halldórsson, formaður FH, þegar hann var spurður út í það að FH hafi kannað hug Ólafs Kristjánssonar áður en Heimi Guðjónssyni var sagt upp.

Ólafur Kristjánsson var áðan kynntur sem nýr þjálfari FH.
Ólafur tók upp boltann á fréttamannafundinum og sagði að hann teldi að vinnubrögð FH hafi ekki verið óeðlileg, þetta sé heimur sem þjálfarar þurfa að sætta sig við.

„Mér finnst eðlilegt að klúbbarnir líti í kringum sig ef hlutirnir gerast. Í þeim störfum sem ég hef verið í þykir mér ekkert óeðlilegt við það. Þetta var ekkert plott og ekkert sem var búið að vinna. Þetta gerðist hratt og eitt leiddi af öðru. Ég var ekki viss um hvort ég væri að koma til Íslands aftur,\" segir Ólafur.

„Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað í Hafnarfjörðinn. Ég hef fylgst með FH vaxa og dafna sem félag og þegar ég þarf að taka ákvörðun um hvort ég vilji vera erlendis áfram eða koma heim var þetta áhugaverður kostur. Hér hafa verið frábærir þjálfarar og ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um. Hér er búið að byggja upp félag sem er til fyrirmyndar og ég er stoltur af því að fá að byggja ofan á það. Ég tel mikilvægt að allir virði það að FH væri ekki það sem félagið er í dag ef þeir sem koma að málum hefðu ekki unnið þessa vinnu.\"

Jón Rúnar þakkaði Heimi Guðjónssyni fyrir góð störf.

„Það er ekkert grín að skipta um þjálfara, sérstaklega þegar menn hafa notið eins mikillar velgengni og Heimir Guðjónsson. Stundum þarf að breyta til og sársaukinn hér innanhúss er sá að Heimir var orðinn einn af okkur góðu vinum og verður það áfram. Við þurftum að skoða hlutina upp á nýtt og þetta var niðurstaðan. Ásakanir um að þetta hafi verið eitthvað plott eru rangar. Við þökkum Heimi fyrir gríðarlega gott starf og við erum sannfærðir um að Óli muni byggja ofan á þá vegferð. Hann veit nákvæmlega við hverju er búist af honum,\" segir Jón Rúnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.